Stéttarfélög og vinnudeilur

Verkfallsréttur og samþykktir ILO

Langt fram eftir 20 öld var ekki verulegur ágreiningur inn Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um verkfallsrétt sem eðlilegan og óaðskiljanlegan hluta kjarasamningsréttarins. Hér undir eru samþykktir ILO nr. 87 og 98. Eftir fall Berlínarmúrsins og í kjölfar aukinnar alþjóðavæðingar og frelsis í viðskiptum hófu alþjóðleg samtök atvinnurekenda baráttu gegn því að verkfallsrétturinn væri verndaður af samþykktum ILO og drógu samhliða í efa áratuga venjuhelgaða túlkun Sérfræðinganefndar ILO (CE – Committee of Experts) og Félagafrelsisnefndar ILO (CFA-Committee of Freedom of Association). Byggt var á þeirri kenningu að verkfallsrétturinn sé einungis varinn af landsrétti. Þessum skoðunum hefur alþjóðasamfélagið og fræðasamfélagið hafnað. Vegna þessa andófs atvinnurekenda og þar sem það hindraði störf ILO og eftirlitsstofnana var deilunni vísað til Alþjóðadómstólsins í Haag, en skv. stjórnarskrá ILO gefur hann álit um túlkun samþykkta ILO rísi ágreningur þar um.

Í ráðgefandi áliti sínu 21. maí 2026 komst Alþjóðadómstóllinn í Haag að þeirri niðurstöðu að verkfallsréttur launafólks og samtaka þess njóti verndar samkvæmt samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) nr. 87 um félagafrelsi og verndun þess. Niðurstaðan var samþykkt með tíu atkvæðum gegn fjórum. Þótt verkfallsrétturinn sé ekki nefndur berum orðum í samþykkt nr. 87 taldi dómstóllinn það ekki ráða úrslitum. Hann leit sérstaklega til 2., 3. og 10. gr. samþykktarinnar, sem tryggja launafólki rétt til að stofna samtök, skipuleggja starfsemi þeirra og vinna að því að efla og verja hagsmuni félagsmanna. Hugtakið „starfsemi“ væri nægilega víðtækt til að taka til verkfallsaðgerða. Dómstóllinn lagði jafnframt áherslu á markmið samþykktarinnar um raunverulegt félagafrelsi og bætt starfskjör. Verkfall væri eitt helsta úrræði launafólks og samtaka þess til að gæta hagsmuna sinna og bæta starfskjör. Vernd verkfallsréttar væri því í samræmi við tilgang samþykktar nr. 87. Við túlkunina studdist dómstóllinn einnig við aðra alþjóðlega mannréttindasamninga, einkum alþjóðasamninginn um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi og alþjóðasamninginn um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi. Sú skoðun að verkfallsréttur sé hluti félagafrelsis fékk einnig stuðning í framkvæmd eftirlitsstofnana ILO og svæðisbundnum mannréttindasamningum og dómaframkvæmd. Dómstóllinn tók þó skýrt fram að álitið ákvarðar ekki nákvæmt inntak, umfang eða skilyrði verkfallsréttarins. Sú umfjöllun tilheyrir landsrétti en alveg ljóst að þær reglur geta ekki verið þannig úr garði gerðar að þær í reynd takmarki hann um of.

Sjá einnig eftirfarandi yfirlit um túlkun ILO.

The right to strike and the ILO. Legal foundations. ITUC 03.2014

The right to strike and the modalities and practices of strike action at national level. ILO 02.2015.

VEFTRÉ

Vinnuréttarvefnum er skipt upp í nokkra meginkafla sem hver um sig fjallar um flest sem viðkemur íslenskum vinnurétti, og umgjörð íslensks vinnumarkaðar.
Leita á vinnuréttarvef
  • Vinnuréttarvefur
  • Um vinnuréttarvefinn
  • Vinnuréttur