Samkvæmt lögum nr. 144/2020 um fæðingar- og foreldraorlof eiga foreldrar sjálfstæðan rétt til fæðingarorlofs í allt að sex mánuði hvort um sig vegna fæðingar, frumættleiðingar barns eða töku barns í varanlegt fóstur. Foreldri er heimilt að framselja sex vikur af sjálfstæðum rétti sínum til hins foreldrisins. Lögin um fæðingar- og foreldraorlof eru almenn lög og gilda því jafnt á almennum og opinberum vinnumarkaði.
Mánaðarleg greiðsla Fæðingarorlofssjóðs til starfsfólks í fæðingarorlofi nemur 80% af meðaltali heildarlauna yfir ákveðið tímabil. Greiðslur verða þó aldrei hærri en 900.000 kr. á mánuði vegna fæðingarorlofs sem nýtt er 1. janúar 2026 eða síðar.
Foreldrar hafa ennfremur rétt til að taka 4 mánaða ólaunað foreldraorlof fyrir hvert barn en rétturinn fellur niður er barnið nær átta ára aldri. Hvort foreldri um sig hefur þennan rétt og skal heimilt að taka foreldraorlof í einu lagi en þó er heimilt með samkomulagi við vinnuveitanda að haga foreldraorlofi með öðrum hætti, t.d. þannig að orlofið sé tekið samhliða minnkandi starfshlutfalli. Foreldraorlofi fylgir aftur á móti ekki réttur til greiðslu launa úr Fæðingarorlofssjóði.
Almennur vinnumarkaður
Í lögum um fæðingar- og foreldraorlof segir að fæðingarorlof skuli reiknast til starfstíma við mat á starfstengdum réttindum, svo sem rétti til orlofstöku og lengingar orlofs samkvæmt kjarasamningum, starfsaldurshækkana, veikindaréttar, uppsagnarfrests og réttar til atvinnuleysisbóta.
Samkvæmt úrskurði úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála og niðurstöðu dómstóla fylgir áunnum rétti til orlofstöku meðan á fæðingarorlofi stendur ekki réttur til greiðslu í orlofinu. Með öðrum orðum þýðir þetta að orlof reiknast ekki ofan á greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði og lögin setja ekki þá kvöð á atvinnurekendur að þeir greiði laun í orlofi sem áunnið er meðan á töku fæðingarorlofs stendur. Starfsmenn ávinna sér því eingöngu inn rétt til frítöku en ekki til orlofslauna í fæðingarorlofi.
Opinber vinnumarkaður
Í kjölfar framangreindrar niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar og dómstóla var gerð breyting á kjarasamningum opinberra starfsmanna með samkomulagi BHM, BSRB, KÍ annars vegar og fjármálaráðherra, Reykjavíkurborgar og Launanefndar sveitarfélaga hins vegar. Félagsmenn opinberu félaganna ávinna sér því rétt til orlofslauna auk frítökuréttar í fæðingarorlofi. Sambærileg leiðrétting var gerð á kjarasamningum almennu félaganna við sveitarfélög og ríki.
