Réttindi og skyldur

Frádráttur frá launum

Þegar heildarlaun starfsmanns fyrir ákveðið launatímabil, s.s. viku eða mánuð, hafa verið reiknuð út, ber atvinnurekanda áður en kemur að útborgun launa, að draga lög- og samningsbundnar greiðslur frá þeirri upphæð, s.s. vegna staðgreiðslu skatta, lífeyrisiðgjalda, félagsgjalda o.s.frv. Nettólaun er sú upphæð sem eftir stendur þegar slíkur frádráttur hefur verið framkvæmdur. Í þessum kafla er fjallað um það helsta sem draga má skv. framansögðu af launum starfsmanna. Atvinnurekendum ber síðan sjálfum að greiða ýmis iðgjöld önnur til hinna ýmsu sjóða á vinnumarkaði og er fjallað um þau í kaflanum “Sjóðir stéttarfélaga“.

VEFTRÉ

Vinnuréttarvefnum er skipt upp í nokkra meginkafla sem hver um sig fjallar um flest sem viðkemur íslenskum vinnurétti, og umgjörð íslensks vinnumarkaðar.
Leita á vinnuréttarvef
  • Vinnuréttarvefur
  • Um vinnuréttarvefinn
  • Vinnuréttur