Réttindi og skyldur

Sérákvæði um fatlaða

Lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 kveða á um forgang fatlaðra að störfum hjá ríki og sveitarfélögum. Í 3.mgr. 22. gr. laganna segir að fatlaðir skuli eiga forgang að atvinnu hjá ríki og sveitarfélögum ef hæfni þeirra til starfsins er meiri eða jöfn hæfni annarra sem um starfið sækja. Sé að mati svæðisráðs gengið á rétt fatlaðs manns við veitingu starfs getur það krafið veitingarvaldshafa um skriflega greinargerð fyrir ákvörðun sinni í sambandi við stöðuveitinguna. Þótt ákvæðið taki þannig fyrst og fremst til forgangs við ráðningar hlýtur hið sama að gilda við uppsagnir og fækkun starfsfólks á vinnustöðum hjá hinu opinbera. Reglan gildir hins vegar ekki á almennum vinnumarkaði. Hvað hann varðar ber hins vegar að hafa í huga, að uppsögn fatlaðs starfsmanns vegna ástæðna sem tengjast fötlun hans kann að geta falið í sér óbein mismunun. Þetta kemur m.a. fram í dómi Evrópudómstólsins í málinu nr. C-5/24 frá 11.9 2025. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að reglur sem meðhöndla alla veikindafjarveru eins, óháð því hvort hún tengist fötlun eða ekki, geti bitnað sérstaklega á fötluðum starfsmönnum. Fyrst verði að gera hæfilegar aðlögunaraðgerðir áður en reglunum verði beitt, þar sem slíkar aðgerðir séu grundvallarhluti verndar gegn mismunun á grundvelli fötlunar.

VEFTRÉ

Vinnuréttarvefnum er skipt upp í nokkra meginkafla sem hver um sig fjallar um flest sem viðkemur íslenskum vinnurétti, og umgjörð íslensks vinnumarkaðar.
Leita á vinnuréttarvef
  • Vinnuréttarvefur
  • Um vinnuréttarvefinn
  • Vinnuréttur