Réttindi og skyldur

Vextir og kostnaður

Kostnaður vegna innheimtu kröfu

Ef krafa launamanns eða lífeyrissjóðs nýtur ábyrgðar sjóðsins þá á kröfuhafi rétt á greiðslu eðlilegs kostnaðar vegna innheimtu hennar, þ.m.t. dæmds málskostnaðar.

Skiptatrygging

Auk innheimtukostnaðar ber sjóðurinn einnig ábyrgð á greiðslu skiptatryggingar sem launamaður eða lífeyrissjóður hefur greitt.

Reglur stjórnar Ábyrgðarsjóðs launa

Stjórn Ábyrgðarsjóðs launa skal setja reglur sem ráðherra staðfestir um hámark á greiðslu kostnaðar og önnur skilyrði fyrir ábyrgð sjóðsins á kröfum sem njóta ábyrgðar sjóðsins.

VEFTRÉ

Vinnuréttarvefnum er skipt upp í nokkra meginkafla sem hver um sig fjallar um flest sem viðkemur íslenskum vinnurétti, og umgjörð íslensks vinnumarkaðar.
Leita á vinnuréttarvef
  • Vinnuréttarvefur
  • Um vinnuréttarvefinn
  • Vinnuréttur