Útsendir starfsmenn

Útsendir starfsmenn

Útsending starfsmanns felur í sér að fyrirtæki með staðfestu í öðru ríki sendir starfsmann sinn tímabundið til Íslands til að veita þjónustu hér á landi. Ráðningarsamband starfsmannsins við erlenda vinnuveitandann helst á meðan á útsendingunni stendur og útsendingin þarf að tengjast raunverulegri starfsemi og þjónustu fyrirtækisins yfir landamæri.

Um útsendingu starfsmanna til Íslands gilda einkum lög nr. 45/2007 um réttindi og skyldur erlendra fyrirtækja sem senda starfsmenn tímabundið til Íslands og starfskjör starfsmanna þeirra. Lögin byggja á reglum EES-réttar um útsendingu starfsmanna og hafa meðal annars að markmiði að tryggja útsendum starfsmönnum tiltekin lágmarksréttindi og starfskjör meðan þeir starfa hér landi og kveða á um skyldur erlendra þjónustuveitenda og eftirlit með starfsemi þeirra.

Útsending má ekki vera leið til að komast hjá þeim réttindum sem starfsmanni ber samkvæmt íslenskum lögum og kjarasamningum. Heiti samnings eða formleg skráning ræður ekki ein og sér úrslitum um réttarstöðu starfsmanns; líta þarf til raunverulegra aðstæðna og framkvæmdar vinnunnar.

Staða og kjör útsendra starfsmanna ræðst fyrst og fremst af fyrr nefndum lögum. Auk þeirra þarf að taka mið af gildandi kjarasamningi, ráðningarsambandi og ráðningarkjörum, raunverulegu skipulagi vinnunnar, almannatryggingastöðu og öðrum atvikum.

VEFTRÉ

Vinnuréttarvefnum er skipt upp í nokkra meginkafla sem hver um sig fjallar um flest sem viðkemur íslenskum vinnurétti, og umgjörð íslensks vinnumarkaðar.
Leita á vinnuréttarvef
  • Vinnuréttarvefur
  • Um vinnuréttarvefinn
  • Vinnuréttur